Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Tækið þitt er búið GSM-útvarpi og þráðlausu
LAN-útvarpi. Ef slökkt er á tækinu með því að styðja á rofa þess slokknar á báðum útvörpunum. Athugaðu hins vegar að ef slökkt er á tækinu
með því að virkja utannetssniðið getur þú samt komið á nýrri þráðlausri LAN tengingu. Mundu því að fylgja öllum viðeigandi öryggisráðstöfunum
þegar þú kemur á og notar þráðlausa LAN tengingu. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga
fyrir í akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á notagildi þeirra.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki má nota tækið nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar takmarkanir. Ekki má nota tækið þar sem verið er að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI
Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.
ÖRYGGISAFRIT
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.
NEYÐARHRINGINGAR
Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Styðja skal á
eins oft og þarf til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur að
upphafsskjánum. Neyðarnúmerið er valið, síðan er stutt á
. Gefa skal upp staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu
leyfi til þess.