SÉRÞJÓNUSTA
Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu tæki eru háðar því að aðgerðir
í þráðlausa símkerfinu virki. Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum símkerfum eða þörf getur verið á sérstökum ráðstöfunum
Copyright © 2004-2005 Nokia. All Rights Reserved.
6
hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu. Þjónustuveitan getur þurft að gefa viðbótarfyrirmæli um notkun og útskýra hvaða
gjöld eiga við. Sum símkerfi geta verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki
alla séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í
valmynd tækisins. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglurnar (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Símkerfisstuðningur er nauðsynlegur fyrir
sumar aðgerðir þessa tækis, líkt og margmiðlunarboð og vafra.