Samnýtt minni
Eftirfarandi aðgerðir í þessu tæki geta samnýtt minni: tengiliðir, textaboð, margmiðlunarboð, hringitónar, hljóðskrár, dagbók og minnispunktar,
skrár sem eru vistaðar í hvaða forriti sem er (t.d. ritvinnsluskjöl, myndir, hljóðskrár og myndinnskot) sem og forrit sem hlaðið hefur verið niður.
Notkun einnar eða fleiri þessara aðgerða getur minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir sem samnýta minni. Til dæmis getur vistun margra
mynda valdið því að minnið fyllist. Tækið getur birt boð um að minnið sé fullt þegar reynt er að nota aðgerð sem notar samnýtt minni. Þá skal
eyða einhverjum upplýsingum eða færslum sem eru geymdar í aðgerðunum sem samnýta minni áður en haldið er áfram.