Nokia 9500 Communicator - Communicator-notandaviðmót

background image

Communicator-notandaviðmót

Lyklaborð Communicator

1 — Hnappar fyrir forrit. Hver hnappur ræsir samsvarandi forrit, utan Minn eigin lykill, hann getur þú stillt til að opna hvaða

forrit sem er. Styddu á Ctrl+Minn eigin lykill til að velja það forrit sem þú vilt að Minn eigin lykill-hnappurinn opni. Hafðu í huga

að þú getur líka opnað þessi forrit úr Skjáborðinu.
2 — Sérstafatakki. Opnar töflu þar sem þú getur valið sérstafi. Styddu á Chr+takka, auðkennda með grænum táknum, til að fá

fram sérstafi og aðgerðir takkasamstæðna.
3 — Hjálpartakki. Styddu á Chr+ til að fá aðstoð við að nota tækið þitt.
4 — Bluetooth-takki. Styddu á Chr+ til að kveikja á Bluetooth. Styddu aftur á Chr+ til að slökkva.
5 — Súmmtakkar. Með því að styðja á Chr+súmmtakkana getur þú látið stafi og sum tákn birtast stærri eða smærri.
6 — Takki fyrir innrauða tengingu. Styddu á Chr+ til að ræsa innrauða tengingu. Styddu aftur á Chr+ til að slökkva.
7 — Skruntakki. Styddu skruntakkanum til hægri, vinstri, upp eða niður til að skruna í gegnum hina ýmsu lista. Styddu á miðju

skruntakkans til að velja eða framkvæma aðgerð undirstrikaðs skipunarhnapps.
8 — Valmyndartakki. Styddu á Valmyndartakkann til að opna valmyndina eða fletta á milli skjáa þegar þess gerist þörf.
9 — Samstillingartakki. Komdu á tengingu og styddu á Chr+ til að samstilla tækið þitt við samhæfa tölvu.

Ábending: Þú getur notað örvatakkana eða skruntakkann til að færa þig til innan valmyndirnar og skjásins, til dæmis

í vefforriti. Örvatakkinn til vinstri er á Bluetooth-takkanum (4), upp og niður örvatakkarnir er á súmmtökkunum (5) og

örvatakkinn til hægri er á innrauða takkanum (6).
Ábending: Styddu á Esc til að afturkalla val og loka samtölum.

H a f i s t h a n d a

Copyright © 2004-2005 Nokia. All Rights Reserved.

11

background image

Ábending: Styddu á „Backspace“-takkann til að eyða hlutum svo sem dagbókarfærslum og skilaboðum. Styddu á

„backspace“ takkann til að eyða stöfum vinstra megin við bendilinn og á Shift+backspace til að eyða stöfum hægra

megin við hann.

Það kviknar á Communicatorskjánum þegar þú opnar símann. Það forrit sem var í notkun síðast þegar tækið var notað birtist

á skjánum. Þegar þú lokar símanum drepur skjárinn á sér.

Aðalskjár

1 — Valmynd. Styddu á Valmyndartakkann til að opna valmyndina. Þú getur notað skruntakkann eða örvatakkana til að færa

þig til í valmyndinni og stutt á enter-takkann til að velja valmyndarvalkost.
2 — Mappa. Þú getur flokkað saman forrit, flýtivísa og minnispunkta í mismunandi möppur.

Sjá „Nýir hópar búnir til“, bls. 21.

3 — Skrunstika. Ef þú ert t.d. með langa skrá í

Documents

auðveldar skrunstikan þér að meta hvar þú ert í skránni og hve stóran

hluta hennar þú getur séð. Því lengri sem skrunstikan er, þeim mun meira sérðu af skránni.
4 — Skipanahnappar. Skipanirnar hægra megin á skjánum eru samsvarandi skipanahnöppunum. Taktu eftir að þegar skipun

er dekkt er ekki hægt að nota hana.
5 — Forrit. Til að velja forrit úr

Desk

, veldu forritið og styddu á

Open

eða enter-takkann.

6 — Vísasvæði. Vísasvæðið birtir kerfistengdar upplýsingar sem og forrit.

Skjáir með fleiri en eina síðu

1 — Síður á skjá. Þú getur skipt á milli síðna með því að styðja á valmyndartakkann.
2 — Vallisti. Þú getur skoðað mismunandi valkosti í vallistanum og valið einn þeirra.
3 — Skipanahnappar. Þú getur notað skipanatakkana til að framkvæma aðgerðir á skjásíðu eða í vallista.
Ef fleiri en einn rammi er opinn á skjánum þá er virki ramminn auðkenndur. Þú getur skipt á milli ramma með því að styðja á

tab-takkann.

Ábending: Styddu á Chr+tab-takkann til að skipta á milli opinna forrita. Styddu aftur á Chr+tab-takkann til að færa þig

í listanum.

Um skjáinn
Fáeina díla á skjánum kann að vanta, þeir sýna rangan lit eða eru bjartir. Það er einkenni á þessari gerð skjáa. Á sumum skjám

kann að vera stöðugt kveikt eða stöðugt slökkt á einhverjum dílum. Þetta er eðlilegt, ekki galli.
Um Valmyndartakkann
Lyklaborð communicator hefur Valmyndartakka. Styddu á Valmyndartakkann til að komast í hina ýmsu valkosti valmyndar.

Valkostir í boði fara eftir því forriti sem þú ert í. Sá valkostur sem er valinn hefur áhrif á þann hlut sem valinn fyrir eða opinn. Þú

getur notað Valmyndartakkann til að fletta frá einni síðu yfir á aðra í skjám með meira en eina síðu.
Skrunað og valið
Notaðu örvalyklana eða skruntakkann til að færa bendilinn og velja atriði á notendaviðmóti communicator.
Skrunað um notendaviðmót communicator
Þú getur notað fjóra mismunandi örvalykla til að skruna. Að skruna merkir að fara upp, niður, vinstri og hægri í forritahópunum

á skjáborðinu, í forriti, í textanum eða í valmyndinni. Skruntakkinn virkar á svipaðan hátt og örvalyklarnir, en þú getur líka þrýst

skruntakkanum niður til að opna skrár eða framkvæma aðgerð undirstrikaðs skipanahnapps.
Valið
Til að velja texta vinstra megin við bendilinn, styddu á og haltu Shift-lyklinum inni og styddu á vinstri örvatakkann þar til textinn

hefur verið valinn. Til að velja texta hægra megin við bendilinn, styddu á og haltu Shift-lyklinum inni og styddu á hægri

örvatakkann þar til textinn hefur verið valinn.
Til að velja mismunandi atriði eins og skilaboð, skrár eða tengiliði, styddu á örvalyklana upp, niður, vinstri eða hægri til að

skruna að atriðinu sem þú vilt.

H a f i s t h a n d a

Copyright © 2004-2005 Nokia. All Rights Reserved.

12

background image

Til að velja eitt atriði í einu, skrunaðu að fyrsta atriðinu, styddu á og haltu inni Ctrl-lyklinum, skrunaðu að næsta atriði og styddu

á bilslána til að velja það.
Til að velja hlut í skrá, til dæmis viðhengi í skjali, færðu bendilinn að hlutnum þannig að ferhyrnd merki birtist sitt hvoru megin

við hlutinn.
Til að velja reit í vinnuörk, færðu bendilinn að reitnum sem þú vilt. Til að velja heila röð, færðu bendilinn að fyrsta reitnum í

fyrsta dálkinum í röðinni og styddu á Shift+vinstri örvalykilinn. Til að velja heilan dálk, færðu bendilinn að fyrsta reitnum í

dálkinum sem þú vilt velja og styddu á Shift+ör upp.