Nokia 9500 Communicator - Data mover

background image

Data mover

Þú getur notað

Data mover

til að flytja tiltekin gögn, svo sem tengiliði og stillingar, úr Nokia 9200 Communicator yfir í Nokia

9500 Communicator með innrauðu tengi eða minniskorti.
Áður en þú byrjar skaltu ganga úr skugga um að það sé nægjanlegt minni laust í tækjunum eða minniskortinu fyrir flutninginn.

Ef laust minni er undir 2 MB í Nokia 9500 Communicator geturðu ekki flutt nein gögn.
Notaðu ekki Nokia 9500 Communicator þegar þú notar Gagnaflytjarann. Slökktu á símanum, ef það er mögulegt. Gakktu úr

skugga um að næg hleðsla sé á rafhlöðunni. Ef hún er ónæg skaltu tengja tækið við hleðslutæki.

Til athugunar: Áður en þú getur notað samhæft minniskort með Nokia 9500 Communicator verður þú að umbreyta

minniskortinu með Gagnaflytjaranum og setja aftur upp forritin sem þú hefur áður sett upp á minniskortinu. Þú skalt

hins vegar ekki setja aftur upp forrit sem voru foruppsett fyrir Nokia 9210 Communicator. Nokia 9500 Communicator

inniheldur nýrri útgáfur af þessum forritum og þú verður að nota þær útgáfur með Nokia 9500 Communicator.

Þörf getur verið á fleiri skrefum, háð þeirri gerð gagna sem þú vilt flytja, flutningsaðferðinni sem þú vilt nota, því hversu mikið

minni er laust í communicator eða á minniskortinu þínu, eða fjölda fyrri flutninga sem tókust eða mistókust.
Gakktu úr skugga um að innrauðu tengin á tækjunum snúi hvort að öðru.
Lestu alltaf leiðbeiningarnar sem Gagnaflytjarinn birtir á skjánum.
1. Farðu í

Desk

>

Tools

>

Data mover

. Ef gögn eru á minniskorti skaltu setja það í Nokia 9200 Communicator. Styddu á

Continue

transfer

.

2. Veldu borgina þína og land og styddu á

OK

.

3. Virkjaðu innrauða tengið á báðum tækjunum, gakktu úr skugga um að tengin snúi hvort að öðru og styddu á

Continue

.

Innrauðri tengingu er komið á milli tækjanna.

4. Styddu á

Send data collector

til að senda Gagnaflytjarann í Nokia 9200 Communicator. Gagnaflytjarinn er sendur sem innrauð

skilaboð í Nokia 9200 Communicator. Styddu á

Open

í 9200 útgáfunni af Communicator til að setja upp Gagnaflytjarann.

Ef

Open

er ekki til staðar skaltu styðja á

Save

til að vista uppsetningarskrána og opna hana í Skráarstjóranum. Gagnaflytjarinn

fer sjálfkrafa í gang eftir uppsetninguna. Stjórnaðu gagnaflutningnum með Nokia 9500 Communicator. Eftir að

Gagnaflytjarinn hefur verið settur upp skaltu styðja á

Connect data coll.

í Nokia 9500 Communicator.

5. Í Nokia 9500 skaltu velja gögnin sem þú vilt flytja úr Nokia 9200 Communicator. Þú getur flutt dagbókar- og

tengiliðaupplýsingar, skilaboð, stillingar, skjöl og myndir. Sumar skrár, líkt og nafnspjöld í skilaboðum og tölvupóstskeyti

sem ekki eru vistuð í Innhólfinu, eru ekki flutt.

6. Styddu á

Transfer infrared

eða

Transfer mem. card

, eftir því hvaða aðferð þú vilt nota.

7. Styddu á

Start transfer

. Ef flutningurinn stöðvast skaltu endurræsa Gagnaflytjarann og halda flutningnum áfram. Ef

flutningurinn stöðvast aftur er mögulegt að það sé eitthvað að gögnunum sem þú ert að reyna að flytja. Ræstu

gagnaflutninginn aftur, án þess að velja þau gögn sem virðast valda vandamálinu.

8. Styddu á

OK

eftir flutninginn til að ljúka ferlinu.

9. Styddu á

Exit

til að loka Gagnaflytjaranum, eða

Convert mem. card

til að umbreyta minniskorti til notkunar í Nokia 9500

Communicator.

Það getur tekið nokkurn tíma að flytja mikið magn gagna úr Nokia 9200 Communicator.