Log
Í
Log
getur þú skoðað upplýsingar um samskiptasögu tækisins, svo sem send og móttekin skilaboð og hringd og móttekin símtöl.
Til að opna notkunarskrána, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
Log
.
Flýtivísir: Í flestum forritum geturðu stutt á Shift+Ctrl+L til að opna notkunarskrána.
Til að nota
From/To
upplýsingar, styddu á
Use
. Þú getur svarað textaskilaboðum, föxum eða símtölum, eða bætt þeim sem
hringir eða sendir skilaboð við tengiliði þína með því að styðja á viðeigandi takka.
Til að velja tegund samskipta sem þú vilt skoða, til dæmis aðeins símtöl, styddu á
Filter by type
.
Til að skoða notkunarskráratburði eftir stefnu, veldu
View
>
Filter by direction...
. Þú getur til dæmis skoðað öll samskipti, eða
skoðað aðeins samskipti sem berast, samskipti út eða samskipti sem misst er af.
Til að raða upplýsingum notkunarskrárinnar í annarri röð, styddu á Valmynd og veldu einn tveggja valkosta í
View
>
Sorting
order
Til að skoða nákvæmar upplýsingar um samskiptaatburð, styddu á
Details
. Þú getur til dæmis séð tegund, stefnu og viðfangsefni
skilaboða eða símanúmer þess sem hringir eða sendir skilaboð.
Til að hreinsa innihald notkunarskrárinnar, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
Clear log...
.
Til að tilgreina hversu lengi notkunarskráaratburðir eru geymdir í skránni áður en þeim er eytt, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
Log duration...
.
Til að afrita númer úr notkunarskrá, styddu á Valmynd og veldu
File
>
Copy number
. Þú getur límt númerið á nýtt tengiliðaspjald
eða í skilaboð.
Til að skoða magn gagna sem eru send eða móttekin með GPRS eða þráðlausu LAN, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
GPRS
data counter
eða
WLAN data counter
.
S í m i
Copyright © 2004-2005 Nokia. All Rights Reserved.
25
5.