Unnið með skjöl
Notaðu skruntakkann til að flakka um í skjalinu og veldu texta með því að styðja á Shift+skruntakkann til vinstri, hægri, upp
eða niður.
Ábending: Þessi valmynd inniheldur marga valkosti sem eru kunnuglegir úr öðrum ritvinnsluforritum.
Til að búa til nýtt skjal, opnaðu
Documents
forritið og byrjaðu að skrifa í skjalinu sem opnast eða styddu á Valmynd og veldu
File
>
New document
>
Blank document...
. Skrifaðu texta eða límdu inn texta úr öðru skjali.
Til að opna tilbúið skjal, styddu á Valmynd og veldu
File
>
Open...
. Leitaðu að möppunni sem skráin er vistuð í.
Ábending: Til að opna skjöl sem notuð voru nýlega, styddu á Valmynd og veldu
File
>
Recent documents
.
Til að afrita eða klippa út valinn texta, styddu á Valmynd og veldu
Edit
>
Copy
eða
Cut
. Til að líma inn textann skaltu fara í skjalið
þar sem þú vilt bæta textanum við, styðja á Valmynd og velja
Edit
>
Paste
.
Til að setja blaðsíðutal í skjal, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
Paginate
. Þessi skipun skiptir skjalinu upp í síður og uppfærir
blaðsíðunúmerin.
Til að setja bil milli síðna eða lína inn í skjal, styddu á Valmynd og veldu
Insert
>
Page break
eða
Line break
.
Til að telja orð, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
Word count
.
Til að leita að texta í skjalinu, styddu á Valmynd og veldu
Edit
>
Find...
. Sláðu inn textann sem þú vilt leita að og styddu á
Find
. Styddu á
Options
ef þú vilt þrengja leitina. Til að skipta því sem fannst út fyrir eitthvað annað, veldu
Replace
, sláðu inn
textann sem á að setja inn og styddu á
Replace
.
Styddu á
Exit
til að vista og loka skjali. Ef þú hefur breytt skránni skaltu styðja á
Save
til að vista skjalið með sjálfgefnu skráarheiti
þess. Styddu á
Save as
til að velja skráarheitið og staðsetningu, eða styddu á
Discard changes
til að loka forritinu án þess að
vista breytingarnar. Styddu á
Change format
til að vista skjal á öðru sniði.
Til að skoða uppbyggingu skjals, styddu á Valmynd og veldu
View
>
Outline...
. Skjalið er byggt upp með fyrirsögnum á
mismunandi stigum. Fyrirsögn 1 er efsta stigið, Fyrirsögn 2 það næsta og svo framvegis. Megintextinn er ekki sýndur í grunnmynd
skjalsins. Til að skoða fleiri stig í grunnmynd skjalsins skaltu styðja á
Expand
. Styddu á
Collapse
til að fela lægri stigin. Til að fara
á ákveðna fyrirsögn í skjalinu, veldu fyrirsögnina og styddu á
Go to
.
Til að fela eða gera textamerki sýnileg, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
Preferences...
. Á
Basic options
síðunni getur þú valið
hvort dálkar, bil og málsgreinamerki sjást í skjalinu. Á
Advanced options
síðunni getur þú valið hvort merki fyrir þvinguð línuskil,
órofin bil og föst bandstrik sjást í skjalinu.
Til að opna ákveðna síðu í skjalinu, styddu á Valmynd og veldu
Tools
>
Go to page...
. Á
Go to
skjánum getur þú séð hvað skjalið
inniheldur margar síður og valið síðu til að fara á. Sláðu inn númer síðunnar og styddu á
Done
.