Bluetooth
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 1.1 sem styður eftirfarandi snið: Generic Access Profile, Service Discovery
Profile, Serial Port Profile, Dial-Up Networking Profile, Generic Object Exchange Profile, Object Push profile, File Transfer Profile
Copyright © 2004-2005 Nokia. All Rights Reserved.
83
og Handsfree Profile. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta
tæki.
Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum eða
þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni, eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar, krefjast
aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu rafhlöðunnar.
Bluetooth-tækni gefur kost á ókeypis þráðlausri tengingu á milli tveggja rafeindatækja sem eru í allt að 10 metra fjarlægð frá
hvort öðru. Hægt er að nota Bluetooth-tengingu til að senda myndir, hreyfimyndir, nafnspjöld, minnismiða í dagbókum og til
að tengjast við önnur tæki sem nota Bluetooth-tækni, líkt og tölvur.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti með útvarpsbylgjum þarf tækið þitt, og hitt tækið/tækin sem það er í
sambandi við ekki að vera staðsett beint á móti hvort öðru. Tækin tvö þurfa einungis að vera í a.m.k. 10 metra fjarlægð frá hvort
öðru. Tengingin getur þó orðið fyrir truflunum t.d. útaf veggjum eða öðrum rafeindatækjum.
Þegar þú ræsir Bluetooth í fyrsta skipti ertu beðinn um að gefa tækinu þínu nafn.