Gangráðar
Framleiðendur gangráða mæla með því að 15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss síma og gangráðs til þess
að komist sé hjá hugsanlegri truflun í gangráðinum. Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða rannsókn og tilmæli frá Wireless
Technology Research. Notendur gangráða:
• skyldu alltaf halda tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu) fjarlægð frá gangráðinum þegar kveikt er á tækinu;
• skyldu ekki bera tækið í brjóstvasa; og
• skyldu hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til að draga úr líkum á truflunum.
• Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á tækinu tafarlaust.